Ahmed al-Mamlouk flúði til Íslands frá Gaza. Hann segir mannúðarneyð blasa við Gaza vegna sprengjuárása, morða og þjóðarmorðs. Ahmed er í sambandi við vini sína og fjölskyldu á Gaza og lýsir skelfilegu ástandi sem þau búa við.Ahmed missti konu sína og fjögur börn í stríðinu. Hann segir að sannarlega sé verið að fremja þjóðarmorð á Gaza.Ein og hálf milljón manna reynir að komast suður frá Gaza-borg vegna árása Ísraela. Margir fara úr öskunni í eldinn.„Við deyjum á hverri sekúndu, hverri mínútu,“ segir Mahmoud al-Dibs, íbúi Gaza-borgar. „Börnin okkar vakna hrædd og sofna hrædd.“